Jólahandverk Ljóssins – Málaðu þitt eigið keramik jólatré

Fimmtudagana 21. og 28. nóvember verða máluð vönduð keramik jólatré hér í Ljósinu.

Nauðsynlegt er að skrá sig í þetta handverk fyrir 15. nóvember.

Trén koma í tveimur stærðum og fást keypt hjá okkur í móttökunni. Margir litir af akríl í boði svo þátttakendur geta látið ímyndunaraflið fá lausan tauminn.

– Lítið keramik tré 3500 krónur
– Stórt tré 4000 krónur

Við hlökkum til að eiga með ykkur notalega stund yfir hátíðlegu handverki milli 9:00-12:00

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.