Í tilefni af bleikum október stendur Garðasókn fyrir glæsilegum styrktartónleikum í Vídalínskirkju, sunnudaginn 25. október kl. 17:00. Yfirskrift tónleikanna er „Bleikur djass“ og rennur allur aðgangseyrir óskiptur til endurhæfingarstarfs Ljóssins.
Samfélagið okkar er það sem gerir starfið í Ljósinu mögulegt. Framtak sem þetta skiptir sköpum til þess að við getum haldið áfram að taka á móti fólki með hlýju og veita gjaldfrjálsa, þverfaglega endurhæfingu — þar sem hver og einn fær rými til að byggja upp styrk sinn á sínum eigin forsendum.
Aðgangseyrir á tónleikana er 5.000 krónur. Hægt er að tryggja sér miða inni á heimasíðu Garðasóknar, en jafnframt verða seldir miðar við kirkjudyrnar áður en tónleikarnir hefjast.
Jazzararnir eru úr efstu skúffu en meðal annars munu stíga á stokk þau Ragnheiður Gröndal, Óskar Guðjónsson og Nicolas Barreau.
Við þökkum Vídalínskirkju kærlega fyrir hugulsemina og þennan hlýja stuðning og hvetjum alla til að gera sér ferð í Garðabæinn og eiga notalega og gefandi stund saman.
Hlekkur á miðasölu: Kaupa miða
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






