Vídalínskirkja stóð fyrir „Bleikum jazz“ tónleikum í október og voru þeir til styrkar Ljósinu.
Tónleikarnir heppnuðust einstaklega vel enda tónlistarfólk úr framlínu íslenskra djassara.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir og Agnar Már Magnússon tónlistarstjóri Garðasóknar afhentu Ernu Magnúsdóttur framkvæmdarstýru Ljóssins styrkinn en alls söfnuðust 700 þúsund krónur.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.





