Þrek í þágu Ljóssins – Styrktarviðburður

Laugardaginn 7. nóvember ætlar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður að efna til þrekdags til styrktar Ljósinu.

Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á allt: þol, styrk, einbeitingu og seiglu. Þrekprófið er tekið í sérstakri þrekbraut og þau sem fara hana einu sinni eru sátt með það, en Bergur ætlar að endurtaka hana í 12 tíma!

Málefni Ljóssins stendur þeim í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins nærri þar sem krabbamein er eitt af áhættuþáttum þess að starfa sem slökkviliðsmaður.

Bergur ætlar að byrja kl. 7:20 og markmiðið er að safna sem mestu fyrir Ljósið en persónulega stefnir hann á að fara brautina a.m.k. 40 sinnum!

Þrekbrautin verður sett upp á slökkvistöðinni í Mosfellsbæ og verður hún opin fyrir almenning milli kl. 11:00 og 14:00 og þá fær fólk tækifæri til að prófa brautina. Á þeim tíma verður gestum einnig boðið upp á súpu gegn vægu endurgjaldi og mun andvirðið ganga óskert til Ljóssins.

Þau vonast til að sjá ykkur sem flest á stöðinni í Mosfellsbæ!

Frekari upplýsingar um viðburðinn má sjá hér.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.