Vá, þvílíkur dagur! Mörg hundruð manns mættu í Ljósafossinn á laugardaginn og þvílík stemning sem myndaðist. Gleðin, stuðningurinn og samstaðan voru svo sannarlega áþreifanleg og ekki skemmdi fallega veðrið fyrir.
Ljósafossinn er alltaf jafn dásamlegur viðburður og það er ómetanlegt að sjá hversu margir mæta ár eftir ár til að sýna Ljósinu stuðning. Við viljum þakka öllum sem mættu og gerðu daginn svona eftirminnilegan. Það var yndislegt að fá að njóta með ykkur.
Ýmsir komu að því að gera Ljósafossinn í ár að þessum fallega og kraftmikla viðburði, við viljum hjartanlega þakka:
- Sjóvá fyrir frábært samstarf og alla hjálpina við skipulagið.
- Fjalla Steina fyrir að leiða gönguna og vera ómetanlegur bakhjarl Ljóssins ár eftir ár.
- Björgunarsveitinni Kjölur fyrir að standa vaktina og tryggja öryggi allra á fjallinu.
- Dynjanda fyrir að styrkja okkur á hverju ári með höfuðljósum fyrir gönguna.
- OZZO fyrir myndatökuna, svo við getum séð fallega Ljósafossinn úr fjarlægð.
- Möndlubásnum fyrir að halda öllum ánægðum með ristuðum möndlum og heitu kakói.
- Fjallafélaginu fyrir að gefa okkur aðgang að Esjustofu.
…og síðast en alls ekki síst, öllum ykkur sem hittuð okkur við Esjurætur.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






