Hvaða þjónusta er í boði þegar þú greinist með krabbamein eða ert aðstandandi.
Það er mikið áfall fyrir alla fjölskylduna þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein. Þá hefst ferli þar sem einstaklingurinn tekst á við breyttar aðstæður.
Einhverjum kann að finnast erfitt að vita hvert hægt sé að snúa sér, hver veitir hvaða þjónustu og hver réttur þeirra er sem greinast. Hér er hægt að finna ýmsa fræðslu og leiðbeiningar auk upplýsinga um hvert hægt sé að leita.