Fræðslufundur um Kynlíf og krabbamein Þriðjudaginn 2. mars kl. 20:00-22:00 býður Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein, upp á fræðslufund um kynlíf og krabbamein. Farið verður yfir það hvernig krabbameinsmeðferð getur haft áhrif á kynlíf ungs fólks, líkamsímynd og margt fleira sem við höfum e.t.v. ekki kjark til að tala um. Fyrirlesarar eru Kraftsfélagarnir Hildur Björk Hilmarsdóttir, viðskiptafræðingur
Ljósið fer nú aftur af stað með styrkjandi námskeið fyrir börn og ungmenni sem eiga foreldri, systkini, ömmu, afa eða annan aðstandenda sem hefur greinst með krabbamein. Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu og er mikið unnið með lífsgleðina í gegnum skemmtileg verkefni. Aðstandandi fylgir barninu í fyrsta
Smellið hérna til að skoða nýju stundaskránna.
Nú er hægt að panta svæðanudd auk þess sem heildræna nuddið heldur áfram. Guðrún Ingólfsdóttir svæðanuddari mun verða hjá Ljósinu í vetur, annan hvern mánudagsmorgunn. 60 mín, og kostar tíminn kr. 4000,- Nuddið er eingöngu ætlað krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra Hvað er svæðanudd? Svæðanudd eins og er stundað á Íslandi er í raun blanda af tveimur erlendum meðferðargreinum. Zonetherapi sem þýðir svæðanudd
Ljósið óskar öllum ljósberum, aðstandendum og velunnurum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum góðar stundir á árinu sem er að líða. Megi ljós og friður lifa með okkur öllum Jólakveðjur Starfsfólk Ljóssins
Stórkostlegur dagur í Ljósinu á sunnudaginn, mikil stemming og mikil gleði. Hátt í þúsund manns heimsóttu okkur og styrktu okkur með því að kaupa fallegar gjafir. Elsku Ljósberar og velunnarar, innilegar þakkir fyrir alla hjálpina. Handverkssalan verður áfram út desember meðan birgðir endast… á opnunartíma kl. 8:30-16:00, enn er þónokkuð til þótt mikið hafi selst.
Solla ætlar að koma til okkar föstudaginn 23.okt kl:10 Hún ætlar að kenna okkur að gera gómsæta morgunhristinga fyrir veturinn, sem hún býr til úr möndlumjólk.
Nudd er góð leið til slökunar og vellíðunar. Aðstandendur eru líka velkomnir í nudd hjá Ljósinu. Við bjóðum uppá klukkutíma heildrænt nudd og slökun á eftir. Gjaldið er lægra en almennt gerist eða 4.000,- Verið að vinna að þvi að fá líka inn svæðanuddara, auglýst síðar. Heildrænt nudd tekur mið af væntingum og ástandi nuddþega hverju sinni, slökun þegar það