Fréttir

12
mar
2013

Ljósið óskar eftir skuplum

Óskum eftir fallegum skuplum eða húfum fyrir nýja eigendur. Móttaka í Ljósinu Langholtsvegi 43  á milli kl. 8.30-16 alla virka daga.

12
mar
2013

Sirrý hársnyrtimeistari flytur

 Sigríður Einarsdóttir ( Sirrý ) hársnyrtimeistari á Hár og Vellíðan er að færa sig um set og verður nú með aðstöðu í Hár og Heilsa á Bergstaðarstræti 13. Hún mun bjóða uppá  almenna hársnyrtiþjónustu, ráðleggingar með hárkollur og höfuðföt. Sirrý leggur áherslu á náttúrulegar meðferðir fyrir hárið eins og hárspameðferðir, persónulega ráðgjöf um hárið og umhirðu þess. Sirrý verður við

Lesa meira

12
mar
2013

Góðgerðavika MS

Góðgerðarvika Menntaskólans við Sund  fór fram í fyrsta skipti,  dagana 11-14. mars. Ungmennin vildu láta gott af sé leiða og söfnuðu pening til að styrkja Ljósið. Þau ákváðu styrkja Ljósið vegna þess að Jenný Þórunn Stefánsdóttir sem var MS-legend í fyrra og var í bæði skemmtinefndinni og Morfísliðinu greindist með krabbamein í vinstra brjóstholi þann 12.október síðastliðinn.  Þau stóðu fyrir

Lesa meira

25
feb
2013

Ungliðahópur Ljóssins,SKB og Krafts

Ungliðahópurinn er samstarfsverkefni Ljóssins, SKB og Krafts,  fyrir fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Fimmtudagskvöldið 28. febrúar næstkomandi kl. 19:30 mun Ungliðahópurinn halda matreiðslukvöld þar sem Beggi og Pacas mæta á svæðið, halda uppi fjörinu og elda með okkur girnilegan og gómsætan mat. Við munum hittast í húsnæði SKB í Hlíðarsmára 14, 201

Lesa meira

19
feb
2013

Gjöf til Ljóssins

Þökkum innilega fyrir styrk frá Kiwanis klúbbnum Heklu  

29
jan
2013

Viðtal í næringarráðgjöf

   Hægt er að panta viðtal í næringarráðgjöf, bæði einstaklingsviðtal    (1 klst) eða hópviðtal (2 klst).  Markmiðið með viðtalinu er að finna leiðir til að bæta mataræði.  Í einstaklingsviðtali er ráðgjöfin einstaklingsmiðuð, farið er yfir matardagbók og fundin leið til að setja raunhæf markmið til að bæta mataræði. Hópviðtal (3-5 saman) er í formi fræðslu og umræðna. Ef áhugi er

Lesa meira

29
jan
2013

Námskeið með Lótushúsi í Ljósinu

Hugleiðsluskólinn  heldur áfram Mánudagana 25.feb, 4.mars, 11. mars, og 18.mars Kl:12:30-13:00 Hugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand.  Hugleiðslan hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa. Í heimi sívaxandi hraða og streitu, er fátt

Lesa meira

29
jan
2013

Solla á Gló í Ljósinu

Solla á Gló ætlar að kíkja til okkar föstudaginn 8.feb frá kl: 10-12.00 Hún ætlar að kenna okkur að gera : Grænan djús Auðveld boost Möndlumjólk Allir velkomnir

14
jan
2013

Aftur til vinnu

Nýtt námskeið í Ljósinu Aftur til vinnu Námskeiðið er lokað námskeið fyrir fólk (að hámarki 10 manns í einu) sem er að fara aftur til vinnu eða í nám innan 6 mánaða. Markmiðið er að fólk fái fræðslu og stuðning sem stuðlar að því að undirbúa sig til vinnu á ný eftir veikindaferli.                                                                  Hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og ráðgjafi í

Lesa meira

14
jan
2013

Styrking vonar og lífskrafts

Fyrir fólk sem hefur greinst oftar en einu sinni eða er með langvinnt krabbamein. Nýtt námskeið hefst 9.apríl Umsjón: Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur, (MS í krabbameinshjúkrun og diploma í hugrænni atferlismeðferð og Anna Sigríður Jónsdóttir iðjuþjálfi. sjá nánar hér