Núvitund snýst um að vita hvað er að gerast innra með okkur á meðan það er að gerast án þess að grípa inn í það. Rannsóknir benda í vaxandi mæli til þess að núvitund ýti undir andlega og líkamlega vellíðan og geri okkur betur í stakk búin til að takast á við áskoranir lífsins. Þessi nálgun hefur verið notuð um árabil í löndum í kringum okkur með góðum árangri.
Í Ljósinu hefst á næstunni nýtt núvitundarnámskeið þar sem þátttakendur þjálfa upp eigin færni í núvitund og finna betur fyrir þeirri ró og meðvitund sem fylgir því að vera í núinu.
Fyrirkomulag: Námskeiðið samanstendur af fræðslu og æfingum í núvitund, auk æfinga í innri og ytri samkennd og góðvild. Æfingarnar felast meðal annars í stuttum sitjandi hugleiðslum, líkamsskönnun og líkams- og gönguhugleiðslum, og gefst einnig rými til að deila eigin upplifun — stundum í hópnum, stundum í minni hópum — fyrir þá sem það kjósa. Þátttakendur fá verkefni til að æfa sig heima á milli tíma, auk leiðarvísis og hljóðupptaka með núvitundaræfingum til að styðja enn frekar við æfinguna.
Næsta námskeið:
- Hefst 7. október
- Miðvikudagar kl. 13:30-15:30, 5 skipti
- Umsjón: Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, sálfræðingur og núvitundar- og samkenndarkennari
Skráning og nánari upplýsingar fara fram í síma 561-3770 sem og á vefnum:
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






