Kæru Ljósberar Gleðilegt nýtt ár, og við þökkum kærlega fyrir það gamla. Við höfum nú opnað aftur og er sama dagskrá í gildi þar til annað verður tilkynnt. Líkamræktin byrjar í dag miðvikudag 4 jan. og ath. að það eru 5 tímar í boði yfir vikuna með fagaðila. Hannes sjúkraþjálfari mun áfram taka viðtöl og þolpróf á föstudagsmorgnum.
Vekjum athygli á að þeir sem vilja ganga með Steina og öllum hinum göngugörpunum geta mætt upp við Esjustofu kl:13.00 en lagt verður af stað upp kl.14.30. En þeir sem vilja fylgjast með þegar Ljósafossinn kemur niður þá er áætlað að hann leggji af stað frá steini um kl.16.15 og verði kominn niður um kl.17.00. Hlökkum til að sjá sem
Fimmtudaginn 17.nóvember kl: 13.30 Hlutverk D-vítamíns í líkamanum. Af hverju þurfum við að taka D-vítamín? Nú er mikið talað um D-vítamín og gagnsemi þess. Guðbjörg Ludvigsdóttir, endurhæfingarlæknir og ljósberi ætlar að fræða okkur um þessa hluti. Allir velkomnir.
Ath rétt heimilisfang á Þróttaraheimilinu er ENGJAVEGUR 7 beint á móti Laugardalshöllinni Undirbúningur er í fullum gangi fyrir glæsilega handverkssölu – verður sú flottasta til þessa.Fallegt handverk,gómsætar sultur, ofursætur kökubasar, ilmandi vöfflukaffi og margt margt fleira, en ekki má gleyma yndislegri jólastemmingu með söng og tónlist. Hlökkum til að sjá ykkur Minnum á nýja staðsetningu – Þróttaraheimilið –
Húsið er okkar ! Þann 19. október sl. festi stjórn Ljóssins kaup á húsnæðinu á Langholtsvegi 43. Þar með er framtíðarhúsnæði undir starfsemina tryggt. Fyrir 6 árum var stofnaður húsnæðis- og minningarsjóður um Eyjólf Sigurðsson sem lést í júlí 2006. Það má með sanni segja að íslenska þjóðin hafi fært okkur eignina í gegnum ýmis söfnunarverkefni og má þar
Létt og skemmtilegt spjall með Matta Osvald Á morgunn miðvikudag 12.okt kl: 8.15 – 9.30
Fjallakofinn er verslun með hágæða útivistarvörur og Fjallakofinn styrkir 400 tinda göngu Steina göngugarps og Ljósið í leiðinni. Þökkum við þeim kærlega fyrir stuðningin.
Fluguhnýtingarnar byrja aftur eftir sumarfrí í kvöld 11.okt ,og verða í vetur á þriðjudagskvöldum kl:19.30 Skemmtilegt kvöld að hittast og undirbúa næsta veiðisumar.
Þar sem fjölskyldumeðlimur hefur greinst með krabbamein og börn þeirra (ca: 6-10 ára). Tilvalið fyrir mömmur, pabba, eða viðkomandi uppalanda að staldra við og eiga góða stund með börnunum í tvo stutta daga og eignast sameiginlegar minningar. Farið verður í ýmiss skemmtileg verkefni og umræður um samvinnu, samskipti og upplifanir. Staðsetning: Ljósið, Langholtsvegi 43, Tími: Tveir laugardagar 1. okt og
Föstudaginn 2.sept. kl: 10.30 Snýst líf þitt um að ná endum saman? Einkennist líf þitt af þreytu og streitu? Áttu erfitt með að einbeita þér og ná árangri í því sem þú tekur þér fyrir hendur? Lifðu því lífi sem þú átt skilið. Lærðu að stjórna tilfinningum þínum, finndu styrkleika þína og hvað aftrar þér í að ná settum markmiðum. Streita er