Ljósið stendur nú fyrir söfnun á Ljósavinum, þú gætir fengið símtal. Sem Ljósavinur greiðir þú ársgjald að upphæð 3.500, og styrkir starfsemi Ljóssins. Það er einnig hægt að skrá sig sem Ljósavin hér inná síðunni. Allir styrkir fara beint í endurhæfinguna og hjálpar þannig til við að efla lífsgæði krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra.
Nýtt námskeið hefst 8.febrúar Skráning og upplýsingar í síma 5613770 Aðalmarkmiðin með námskeiðinu eru að þátttakendur auki, jafnvægi sitt í daglegu lífi, starfsfærni, vellíðan og von. Á námskeiðinu gefst tækifæri til þess að hitta aðra í sömu sporum, fá fræðslu og stuðning við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, efla sjálfsmyndina, draga úr þreytu, auka jafnvægi í daglegri iðju, styrkja tilgang og
Hefst 1.febrúar með kynningarfundi kl.17.30 Nýtt námskeið hefst 8.febrúar Einar Magnússon segir frá reynslu sinni af því að hafa greinst með krabbamein. Aðstandendur eru velkomnir með á kynningarfundinn. Skráning og upplýsingar í síma 5613770 Umsjónarmaður fyrir Ljósið er Matti Ósvald heilsufræðingur
Við erum alsæl með fallega heimilið okkar að Langholtsvegi 43…verið velkomin!
Gleðilegt nýtt ár kæru Ljósberar. Innilegar þakkir fyrir samskiptin á árinu 2015, alla umhyggju, samhug og hjálpsemi við Ljósið okkar. Megi nýtt ár færa okkur farsæld og frið og við hlökkum til að taka aftur á móti ykkur í fallegu og endurbættu húsnæði, þar sem hugsjón okkar er að hjálpa og efla lífsgæði. Það er allt komið á fullt
Ljósinu var á dögunum færð peningagjöf frá Frístundaheimilinu Neðstalandi í Fossvogi. Hressir krakkar á aldrinum 6-9 ára héldu foreldradag með hæfileikasýningu og veitingum. Fólki bauðst að setja frjáls framlög í sparibauk þar sem safnaðist álitleg upphæð. Börnin ákváðu að Ljósið myndi njóta góðs af. Frábært framtak hjá flottum krökkum og Ljósið þakkar þeim innilega fyrir gjöfina sem kemur sér vel
Fimmtudaginn 10.des kl 13:00 kemur Kristján Friðriksson og spjallar um ýmislegt sem viðkemur vatnaveiði og kynnir bókina Vatnaveiði árið um kring sjá nánar hér
Minnum litaglaða á að hún Hrönn frá Litagleði kemur aftur til okkar fimmtudaginn 10. Des kl 13:00
Kæru Ljósberar, aðstandendur og velunnarar Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir góða samveru og samvinnu á árinu sem er að líða.Vonum að þið eigið yndislega jóla og nýárshátið. Vegna þess að verið er að stækka húsnæði Ljóssins á Langholtsvegi 43, þá liggur starfsemin niðri tímabundið. Við munum opna aftur fljótlega í
Það var ótrúlega yndisleg stemning í Ljósafossi laugardaginn 21.nóv sl á Esjunni. Innilegar þakkir til Fjallasteina (Þorsteins Jakobssonar ) sem skipulagði þessa göngu fyrir Ljósið. Þessi stórkostlega mynd er tekin af ljósberanum Ragnari Th. Sigurðssyni. Innilegar þakkir til allra sem tóku þátt og gerðu þetta mögulegt. Smelltu hér til að skoða fleiri myndir