
Fundirnir verða einu sinni í viku á mánudögum kl. 17:30 í 10 vikur, Fræðslufundirnir hafa verið á dagskrá áður og hafa gefist mjög vel. Markmiðið er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu, og hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum. Farið verður í gegnum það breytingarferli sem einstaklingar ganga í gegnum við það að veikjast. Það verða fyrirlestrar um mikilvægi þess að byggja sig upp andlega og líkamlega og mikilvægi þess að setja sér markmið.
10 vikna fræðslunámskeið kostar kr. 5000 ,-.
Kaffi og létt meðlæti.
Dagskrá fundanna:
- 1.febrúar: Kynningarfundur – aðstandendur velkomnir með, Einar Magnússon segir frá eigin reynslu.
- Hugaraðferð afreksmannsins – Matti Osvald heilsufræðingur
- Að vinna með hugsanaflækjur – Guðrún Anna Jónsdóttir sálfræðingur
- Breytingar í daglegu lífi í kjölfar veikinda – Unnur María Þorvarðard. Iðjuþjálfi
- Streita og slökun – Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari og jógakennari.
- Líkamleg uppbygging eftir veikindi – Stefán H Stefánsson sjúkraþjálfari
- Ímyndir krabbameina – Sigrún Reykdal blóðmeinafræðingur
- Karlmennskan – Snorri Ingimarsson krabbameinssérfræðingur og geðlæknir.
- Reynslusögur og samtal – Gunnar L Friðriksson og Ragnar Th Sigurðsson Ljósberar.
- Eldað saman og snjallar gamansögur – Ingvar Guðmundsson kokkur
- Markmið, framtíðarsýn og samantekt á námskeiði – Matti Osvald heilsufræðingur
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.