Föstudaginn 13 febrúar kl. 11:00-12:00 heldur Guðjón Bergmann fyrirlestur í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Hann mun tala um mismunandi leiðir til að eiga við andlegan og líkamlega sársauka – ræða um það hversu miklu máli hugarfarið skiptir og hvaða áhrif það getur haft. Guðjón er Ljósberum kunnur fyrir vandaða fyrirlestra og góð sjálfstyrkingarnámskeið. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis
Miðvikudaginn 21. janúar ætlum við að byrja með matarklúbbin okkar, sem við köllum matur og næring. Við ætlum bæði að elda eitthvað skemmtilegt og spennandi saman, einnig verðum við með fræðslu um mataræði og næringu. Við munum fá til okkar fólk með ýmsa góða fræðslu og kennslu í næringarfræðum og einnig í hollri matargerð. Matarklúbburinn ætlar að hittast fyrsta
Minnum á að námskeiðið í steinamálun, byrjar á morgunn mánudag 19.janúar kl:13.00. Við erum með allt efni á staðnum, en ef þið eigið steina sem ykkur langar að mála þá endilega komið með þá. Auður Gísladóttir steinalistakona kemur og kennir okkur og sýnir steina sem hún framleiðir og selur í búðum. (Margir þekkja steinana hennar en það eru lopapeysukarlar,
Námskeið fyrir fullorðna aðstandendur sem eiga fjölskyldu eða ættinga sem hefur greinst með krabbamein Námskeiðið hefst fimmtudaginn 12 febrúar. Við bjóðum nú uppá 8 vikna námskeið fyrir aðstandendur. Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og fólk mælir með þeim. Námskeiðið er ókeypis. Skráning fer fram hjá starfsfólki Ljóssins síma 5613770
Nýja stundaskráin okkar er loksins komin á netið tilbúin til útprentunar. Það ættu flestallir að finna eitthvað við sitt hæfi, þá er bara að drífa sig á stað til okkar, hlökkum til að sjá ykkur. Nýja stundaskráin er hér
Heilsuefling Spennandi fræðslutímar um heilsu og lífsstíl. Námskeiðið byrjar 2. febrúar og eru skipulagðir fræðslutímar út mars. Markmið: Kynntar verða ýmsar hugmyndir, kenningar og vangaveltur um heilsu. Kynning á hvernig takast á við breytingar í lífinu, lífsviðhorf rætt, sjálfstraust, geðorðin 10 tekin fyrir, markmiðssetning og óskaspjöld, auk þess sem bjargráð verða í brennidepli. Hvert umræðuefni verður kynnt í byrjun
Spilaklúbbur föstudögum kl 13:30 – 16:00 Markmið spilahópsins .Eiga ánægulega og skemmtilega stund saman til þess að koma okkur í gott skap fyrir helgina.Ræða um hvaða spil gæti verið gaman að spila – fá hugmyndir hópmeðlima að spilum hvort sem er borðspil eða venjuleg spil.„Kenna/læra“ mismunandi spil sem ýmist ég kenni eða aðrir meðlimir hópsins.
Minnum á að fluguhnýtingarnar byrja aftur þriðjudaginn 13. febrúar kl:19.30