Elskulegu vinir Ljóssins…innilegar þakkir til ykkar allra sem hlupu fyrir okkur á laugardaginn. Stemningin var stórkostleg og að ógleymdu okkar frábæra klappliði Ljóssins, það var það flottasta…. þúsund þakkir til ykkar allra.
Keppnisfólk út Tennis og Badmintonfélagi Reykjavíkur ákvað að breyta til þegar meistaramót félagsliða í badminton var haldið á vordögum. Liðið valdi að kalla sig Félagsliðið og spila undir merkjum Ljóssins og létu þau baukinn ganga á meðan á keppni stóð og náðu að krúnka út úr öðrum keppendum ákveðna upphæð sem svaraði til að hver og einn hefði keypt sér
Kæru hlauparar…þið sem hlaupið fyrir Ljósið fáið öll borða/merki með Ljósamerkinu okkar svo allir sjái fyrir hvern þið eruð að hlaupa..við verðum í Laugardalshöllinni á morgun föstudag og afhendum merkin og nælur..Hlökkum til að sjá ykkur… Klapplið Ljóssins Undanfarin ár höfum við fjölmennt í klapplið til að hvetja alla hlaupara áfram og sérstaklega þá sem hlaupa fyrir Ljósið í
Í gær komu þessir frábæru krakkar í heimsókn til okkar en þau höfðu nýverið haldið tombólu til styrktar Ljósinu. Þau söfnuðu 14 þúsund krónum sem þau afhentu í heimsókn sinni og færum við þeim bestu þakkir fyrir frábært framlag Ólöf Aníta Hjaltadóttir, Unnur María Davíðsdóttir, Guðrún Heiða Hjaltadóttir, Hjalti Freyr Hjaltason
Flottu ljósabolirnir komnir aftur, nú í tískulit sumarsins verð aðeins 3.000.- Einnig fallegir karlmannsbolir í flottum gráum lit. Endilega kíkið á Langholtsveg 43 opið virka daga frá 08:30-16:00
Möntrusöngur, slökun og gleði! Útgáfutónleikar “Essence” nýjasta disk Dev Suroop Kaur verður á Café Flóru í grasagarðinum í Laugardal, mánudaginn 11 júní.kl:21.00. Dev Suroop er virtur listamaður frá Bandaríkjunum sem notfærir sér list hljóðsins til að ná fram heilun og umbreytingu. Miðaverð 1.800 kr. Miðar seldir við innganginn. Til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Smelltu hér
Innilegar þakkir til Steina göngugarps sem gekk 12 tinda á 16.30 kl.t. fyrir Ljósið okkar. Það var gaman að ganga síðasta spölinn með honum upp Helgafellið ásamt tæplega 100 manns bæði ungum og öldnum. Kærleikskveðjur frá öllum Ljósberum.
Laugardaginn 26.maí, ætlum að ganga á Helgarfellið í hrauninu ofan við Hafnarfjörð. Hittumst við girðinguna við Kaldársel kl.10.45 og gangan hefst kl.11.00. Auðveldasta leiðin verður farin svo allir geti verið með. Tilefnið er að Steini göngugarpur ætlar að toppa 12 fjöll á 17 tímum og Helgarfellið verður síðasti fjallið og ætlum við því að verða honum samferða. Hvetjum
Hjördís Geirsdóttir hin skemmmtilega söngkona kemur aftur í Ljósið og nú með flottan hóp með sér sem kalla sig Hafmeyjurnar Þær mæta á hressar og kátar miðvikudaginn 16. maí. kl :13.30 Allir velkomnir
Kvennakór Háskólans í Manitoba undir stjórn Dr. Elroy Friesen kemur í Ljósið miðvikudaginn 2.maí kl: 13.30 og ætlar að syngja fyrir ljósbera og gesti. Endilega kíkið í kósý stemningu og hlustið á Kanadíska tóna. Kaffi og meðlæti. Smelltu hér til að sjá auglýsingu frá kórnum.