Útskriftarnemar af snyrtibraut FB óskuðu eftir að fá að koma í Ljósið og æfa sig í að farða þau fögru flóð sem hingað koma. Að sjálfsögðu var tekið fagnandi við slíkri beiðni. Því er skemmst frá að segja að hingað komu átta efnilegir verðandi förðunarfræðingar sem drógu fram það besta í módelum sínum. Módelunum þótti mikið til koma og var
Á fimmtudaginn kemur, þann 15. nóvember, verður fyrirlestur í Ljósinu um lífeyrismál og hvernig starfsmenn fjármálastofnanna geta komið til móts við viðskiptavini þegar áföll banka uppá. Fyrirlesturinn hefst kl. 13 og er í boði Íslandsbanka og eru það starfsmenn hans sem verða með erindin. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Fimmtudaginn 1. nóvember n.k. fáum við góða gesti í heimsókn til okkar í Ljósið. Það eru forsvarsmenn Bergmáls, líknar- og vinafélags, en tilgangur félagsins er m.a. að hlúa að krabbameinssjúkum. Heimsókn þeirra er jafnframt liður í fjáröflun félagsins og því koma þau hlaðin gómsætum sultum og hugsanlega einhverju fleiru sem þau bjóða gestum og gangandi að kaupa. Þetta er í
Þriðjudaginn 13. nóvember hefst að nýju jafningjahópur fyrir unga maka. Markmiðið með þessum hópi er að gefa mökum þeirra sem greinst hafa með krabbamein, tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum og tjá sig, en nánustu aðstandendur hafa oft á tíðum mikla þörf fyrir stuðning af þessu tagi. Til að byrja með verða skiptin fjögur, þ.e. á þriðjudögum frá
Föstudaginn 12. október n.k. verður lokað í Ljósinu vegna hópeflisdags starfsfólks. Starfshópurinn mætir svo tvíefldur til starfa mánudaginn 15. október með fullhlaðin batterí og gleðina í fyrirrúmi. Yfirleitt er nú samt stutt í gleðina hjá starfsfólki Ljóssins en afskaplega gott að þétta raðirnar svona stöku sinnum. Þar sem þessi hópeflisdagur var ákveðin í vor þótti okkur afskaplega leiðinlegt að sjá
Þeir eru ófáir sem hugsa til Ljóssins og vilja styrkja það með einum eða öðrum hætti og nú nýverið barst Ljósinu slíkur styrkur. Styrkurinn er í formi geisladisks sem ber það hvetjandi heiti ,,Gríptu daginn“. Á diskinum eru níu frumsamin lög eftir Hróbjart Jónatansson, hæstaréttarlögmann. Geisladiskurinn er fáanlegur í Ljósinu og kostar 2500 kr. og rennur allur ágóði í starfsemi
Þriðjudaginn 25. september nk. verður Margrét Indriðadóttir sjúkraþjálfari Ljóssins með fyrirlestur um sogæðabjúg. Á fyrirlestrinum fer Margrét yfir helstu kvilla brjóstaaðgerða, uppbyggingu sogæðakerfisins og gefur fyrirbyggjandi ráðleggingar gegn sogæðabjúg á handlegg. Margrét hefur um langt skeið sinnt B-hópnum svokallaða hér í Ljósinu, en það er hópur fólks sem greinst hefur með krabbamein í brjósti. Hún hefur því víðtæka og mikla
Frá árinu 2014 hefur Heilsa hf. styrkt ákveðin verkefni í gegnum bætiefnalínu Gula miðans. Í ár nýtur Ljósið stuðningsins sem er veglegur og kunnum við Heilsu hf. okkar bestu þakkir fyrir að styrkja starfsemina með þessu frábæra framlagi. Bætiefnalína gula miðans, sem er í rauninni bleikur, samanstendur af þremur vörutegunum; Acidophilus plús, D3 vítamín og Múlti vít og renna 250
Lokað verður í Ljósinu miðvikudaginn 29. fimmtudaginn 30. og föstudaginn 31. ágúst vegna starfsdaga starfsfólks. Við opnum aftur mánudaginn 3. september með glóðvolgri, nýrri og spennandi stundaskrá. Við minnum á að hægt er að leita upplýsinga um starfsemin hér á heimasíðunni og jafnframt er hægt að panta minningarkort hér á síðunni. Hlökkum til að koma fílefld til starfa á ný
Reykajvíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram síðustu helgi og vonandi hefur það ekki farið fram hjá neinum hversu mikinn meðbyr Ljósið fékk í ár. Fyrir það erum við endalaust þakklát og glöð og sendum kærleikskveðjur út í andrúmsloftið til allra þeirra sem komu að hlaupinu með einum eða öðrum hætti. Frá því í vor hefur verið starfræktur hlaupa- og skokkhópur í Ljósinu