Á morgun, miðvikudaginn 12. ágúst, munum við loka aðeins fyrr í Ljósinu, eða stundvíslega klukkan 14:45.
Við gerum þetta til að tryggja að öll – bæði starfsfólk og ljósberar okkar – komist örugglega heim eða á góðan útsýnisstað áður en umferðin þyngist og götulokanir taka gildi.
Við hvetjum ykkur öll til að njóta þessa magnaða sjónarspils sem náttúran býður upp á! Munum bara að passa vel upp á augun og vera með viðurkennd sólmyrkvagleraugu á nefinu.
Við opnum svo aftur á okkar hefðbundna tíma á fimmtudagsmorgun.
Njótið myrkvans og farið varlega í umferðinni <3
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






