Innilegar þakkir fyrir frábæran dag í gær! Það var ánægjulegt að sjá hve margir mættu í fjölskyldugönguna og nutu samverunnar með okkur.
Í ár nýttum við tækifærið og kynntumst betur fallega umhverfinu við nýja heimili Ljóssins í Grafarvogi. Jafnframt gafst fólki kostur á að kíkja inn í nýja húsnæði Ljóssins og skoða aðstöðuna.
Gangan hófst á léttum upphitunaræfingum og að sjálfsögðu var hinn sívinsæli Superman-dans tekinn, sem Laddi syngur. Eftir gönguna var svo boðið upp á kleinur, heimabakað bananabrauð og drykki.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá deginum.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






