Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um hvernig hægt sé að skrá sig sem hlaupara fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22. ágúst. Hér fyrir neðan eru einfaldar leiðbeiningar:
Skref 1: Farðu inn á hlaupastyrkur.is
Skref 2: Veldu „Taka þátt“

Skref 3: Veldu ,,Mínar síður“ og skráir þig inn með tölvupóstinum þínum.

Skref 4: Ýttu á rauða hnappinn „Skrá mig“ sem er efst í hægra horninu til þess að skrá þig sem hlaupara.

Skref 5: Þegar þú hefur gengið frá kaupunum þá geturðu valið Ljósið sem þitt góðgerðarfélag. Þá velur þú ,,Góðgerðarmál“.

Skref 6: Þar undir viðburður ætti að standa að þú sért þátttakandi í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2026. Þá velur þú rauða hnappinn ,,Búa til síðu“.

Skref 7: Þá opnast upp síða þar sem þú þarft að fylla út m.a. nafn, góðgerðarmál, prófíl mynd. Til að velja Ljósið sem þitt góðgerðarmál þá ýtirðu á rauða hnappinn ,,Veldu góðgerðarmál“ og velur þar Ljósið.

Skref 8: Eftir að það er búið að fylla allt út þá ýtir þú á rauða hnappinn neðst „Vista“ og þá er þetta komið. Þú ættir þá núna að birtast sem hlaupari fyrir Ljósið inn á hlaupastyrkur.is
Hjartans þakkir fyrir að velja að hlaupa fyrir Ljósið og fyrir stuðninginn!
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






