Í Ljósinu er boðið upp á næringarráðgjöf hjá Lilju Guðmundsdóttur næringarfræðingi.
Næringarráðgjöf í endurhæfingu
Krabbamein og meðferð þess geta haft mikil áhrif á matarlyst, meltingu, orku og líkamlega getu. Einstaklingsmiðaðar áherslur í næringu geta skipt sköpum fyrir bæði líðan og bataferli en það getur verið erfitt að vita hvar á að byrja.
Mögulegir ávinningar
Markmiðið með næringarráðgjöfinni er styðja við líkamann í gegnum meðferð og endurhæfingu. Í því felst m.a. að finna leiðir til að auka orku og úthald í daglegu lífi, verkfæri til að takast á við aukaverkanir á borð við lystarleysi, ógleði eða bragðbreytingar ásamt því að halda í vöðvamassann sem er svo mikilvægur. Lögð er áhersla á að auka sjálfstraust og öryggi í eigin fæðuvali.
Við hverju má búast?
Í fyrsta viðtali förum við saman yfir þína stöðu; Matarvenjur, helstu áskoranir og markmið. Þaðan byggjum við upp einstaklingsmiðaða áætlun sem tekur mið af þinni meðferð, orku og þörfum. Við fylgjumst svo með framvindu, gerum breytingar og byggjum ofan á eftir þörfum.
Fyrir hverja er þetta?
Mörgum finnst næringarráðgjöf aðeins eiga við þegar upp eru komin alvarleg vandamál, eins og mikið þyngdartap eða lystarleysi en svo er ekki. Þetta snýst hvorki um höft né bannlista, heldur um að finna raunhæfar, einstaklingsmiðaðar leiðir sem styðja við líkama og líðan, hvar sem þú ert stödd/staddur/statt í ferlinu. Ráðgjöfin er fyrir öll, hvort sem þú vilt bæta mataræðið, draga úr einkennum, eða einfaldlega fá hugmyndir um hvað gæti hentað þér núna. Það er aldrei of snemmt né of seint að leita ráða.
Hægt er að bóka tíma í næringarráðgjöf í móttöku Ljóssins og í síma 561-3770.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






