Námskeiðið tímamót – ný hlutverk hefst í Ljósinu 9. apríl. Námskeiðið er fjögur skipti, kl.14:00-15:30 á fimmtudögum.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem er langt komið í endurhæfingu í Ljósinu og sér ekki fram á að snúa aftur út á vinnumarkaðinn eftir veikindin, hvort sem það er vegna langvarandi heilsufarsvanda og afleiðinga eða vegna þess að það er komið á eftirlaunaaldur.
Ljósið hefur lengi boðið upp á námskeiði Aftur til vinnu eða náms, en svo er stór hópur sem ekki fer á vinnumarkað á ný. Tímamótamótanámskeiðið er á svipuðu stigi í endurhæfingunni eða þegar fólk er komið vel á veg að byggja sig upp og að byrja að skipuleggja hvað taki við eftir útskrift úr Ljósinu.
Á námskeiðinu skoðum við ýmsa þætti heilsunnar, afleiðingar krabbameinsmeðferðarinnar og hvernig hægt er að sinna heilsunni áfram og lifa virku og innihaldsríku lífi. Við kynnum ýmis úrræði sem eru í þjóðfélaginu og fáum til okkar góðan gest sem miðlar sinni reynslu af því að hætta að vinna og skapa sér áhugaverð verkefni. Einnig heimsækjum við samfélagshúsið Borgir í Grafarvogi þar sem fjöldi fólks mætir daglega, sinnir félagsstarfi, áhugamálum og hreyfingu, en fjöldi slíkra félagsmiðstöðva er á höfuðborgarsvæðinu.
Tímarnir eru sambland af fræðslu og umræðum. Þátttakendurnir fá verkfæri og þekkingu til að gera þriðja æviskeiðið innihaldsríkt og skemmtilegt og hvatningu til að halda áfram þeirri heilsueflingu sem þeir hafa tileinkað sér í Ljósinu.
Hægt er að skrá sig hér eða í móttöku Ljóssins.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






