Það var mikil gleði í Ljósinu fyrr í vikunni þegar starfsfólk L’Occitane en Provence færði Ljósinu afrakstur styrktarverkefnis sem fram fór í upphafi árs.
![](https://ljosid.is/wp-content/uploads/2023/03/Ljosid-Loccitane-2023-300x169.png)
Erna Magnúsdóttir, ásamt Sigrúnu og Önnu Lilju frá L’Occitane og Kristjönu, höfundi mynstursins fallega
Alls söfnuðust 150.000 krónur við sölu á handáburði og fótakremi sem klædd höfðu verið í sérhannaðar ullarstúkur.
Stúkurnar voru handprjónaðar af einstaklingum sótt hafa endurhæfingu í Ljósið og fulltrúum frá L’Occitane. Það var Kristjana Björk Traustadóttir sem hannaði mynstrið í stúkunum sem voru prjónaðar úr garni frá Prjónabúðinni Tinnu. Aðkoma Kristjönu var fyrir tilstilli Önnu Lilju Gunnarsdóttur sem starfar hjá L’Occitane, en þær kynntust á námskeiði fyrir ungar konur í Ljósinu.
![](https://ljosid.is/wp-content/uploads/2023/03/Ljosabladid-2022-Myndir-i-greinar-18-300x169.png)
Kristjana og Anna Lilja kynntust í Ljósinu
L’Occitane afhenti Ljósinu einnig handsápur, handáburð og sótthreinsandi ásamt áfyllingum og við hlökkum til að vera með dúnamjúkar hendur í endurhæfingunni á næstunni.
Við þökkum L’Occitane en Provence kærlega fyrir stuðninginn.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.