Tiltek í leirherberginu fyrir flutninga

UPPFÆRT 20.08.2026: Við höfum bætt við tveimur auka tímum, fimmtudaginn 27. ágúst og miðvikudaginn 2. september kl. 9:00-12:00. Vinsamlegast skráið ykkur í móttöku Ljóssins.

 

Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9:00-12:00 verður hægt að koma niður í leirherbergi til þess að glerja óglerjaða muni. Endilega skráði ykkur í móttökunni ef þið vitið af óglerjuðum leirmunum sem þið eigið frá því í vetur/vor/sumar. Þau ykkar sem eruð ekki alveg viss eruð velkomin að kíkja niður á þessum tíma.

Þar sem við munum ekki flytja með okkur óglerjaða eða ósótta muni í Gylfaflötina hvetjum við ykkur til þess að koma og athuga hvort það er eitthvað sem þið eigið niðiri í leirherbergi miðvikudaginn 19. ágúst. Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er óljóst.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.