Bleikur október er yfirskrift listamánaðar í Bústaðakirkju.
Í október gefst tónleikagestum á hádegistónleikum kirkjunnar kost á að leggja starfi Ljóssins lið.
Hádegistónleikar verða alla miðvikudagana í október og mun tónlistin í sunnudagshelgihaldi Bústaðakirkju í október einnig taka mið af Bleikum október
Tenórarnir Gunnar Guðbjörnsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Marteinn Snævarr Sigurðsson syngja á hádegistónleikum í Bústaðakirkju miðvikudaginn 12. október kl. 12:05-12.30.
Jónas Þórir leikur með á flygilinn. Aðgangur ókeypis.
Að tónleikunum loknum er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimili kirkjunnar, gegn vægu gjaldi.
Við hvetjum ykkur öll að eiga góða hádegisstund í október í Bústaðakirkju
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.