Í haust bjóðum við uppá nýjan stafrænan dagskrárlið í Ljósinu.
Fræðslufundirnir fara fram á ZOOM, og hentar sérstaklega vel þeim sem ekki hafa tök á að sækja Ljósið heim. Fræðslan hentar bæði þeim sem eru að hefja endurhæfingu og þeim sem eru lengra komnir í ferlinu
Í hverjum mánuði verður að finna nýtt þema en í september er yfirskriftið Lífstílll og vellíðan og verða umfjöllunarefni fræðslunnar eftirfarandi:
1. september – Svefn og öndun, Eydís Helga Garðarsdóttir iðjuþjálfi.
Á þessum fyrirlestri verður farið yfir mikilvægi svefns, svefnrútínu og hvernig svefn og rétt öndun getur auðveldað okkur framkvæmd daglegra athafna.
8. september – Næring og vellíðan, Elísabet Heiður Jóhannesdóttir næringarfræðingur
Fjallað um hvernig við getum nýtt næringu til að viðhalda heilbrigðum lífsstíl auk þess að bæta líkamlega og andlega vellíðan.
15. september – Láttu þér líða vel, Elín Kristín sálfræðngur
Bjargráð og aðferðir til að auka vellíðan þrátt fyrir heilsufarslegar áskoranir.
22. september – Bandvefslosun, Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfari
Bandvefslosun hjálpar til við að losa um spennu í vöðvum og eykur teygjanleika bandvefsins sem umlykja alla vöðva líkamans. Sjálfsnudd með nuddbolta getur mýkt stífa vöðva, aukið liðleika og vellíðan.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.