Kæru vinir,
Í næstu viku, dagana 15. – 17.desember ætlum við að vera á jólalegu nótunum í Ljósinu. Við hvetjum alla bæði starfsfólk og þá sem heimsækja Ljósið að koma jólaleg í hús. Þetta þarf ekki að vera flókið, það er ýmislegt hægt að gera einfalt en gott í þeim málum. Jólasokkar, eyrnalokkar, jólapeysur, húfur, hægt er að hengja á sig jólakúlu nú eða bara skella á sig rauðum og jólalegum varalit.
Starfsfólki Ljóssins hlakkar mikið til sjá ykkur öll jólaleg og í jólaskapi.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.