Í samstarfi við Dale Carnegie bjóðum við 14-17 ára ungmenni sem greinst hafa með krabbamein eða eru aðstandendur, velkomin á tveggja skipta námskeið 1. og 8. október.
Á námskeiðinu setjum við raunhæf markmið fyrir veturinn og mótum framtíðina á okkar eigin forsendum. Við skoðum styrkleikana okkar og finnum eldmóðinn sem þarf til að ná sem mestum árangri. Við þjálfumst í að líta á áskoranir sem tækifæri til þess að efla okkur og ná lengra.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer skráning fram í móttöku Ljóssins í síma 561-3770 eða í tölvupósti með því að smella hér.
Oft eru miklar breytingar í lífi okkar og það reynir á okkur á nýjan hátt t.d. í samskiptum við vini og fjölskyldu. Krabbamein getur svo sannarlega haft mikil áhrif á líf okkar. Það er mikilvægt að forgangsraða rétt svo við veljum það besta fyrir okkur og náum að takast á við stress og kvíða. Í gegnum örnámskeiðið eflum við einnig hugarfarið okkar og verðum betri í að finna lausnir og framkvæma í stað þess að fresta. Sjálfsmyndin styrkist við jákvæðari upplifanir af sjálfum okkur og við verðum öflugri leiðtogar í okkar eigin lífi.
Fyrir hverja
Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 14-17 ára sem vilja vera leiðtogar í eigin lífi, framkvæma í stað þess að fresta, auka hugrekki og líða almennt betur í eigin skinni.
Það sem við förum yfir
- Skoðum virði þess að setja eldmóð í verkefni og leggja okkur fram, hvernig við kveikjum á þessum krafti til að ráðast á öll verkefni
- Lærum aðferðir til að setja okkur markmið og skipuleggja okkur betur
- Förum yfir gildi þess að vera jákvæðari og lærum að stjórna viðhorfinu okkar betur
- Kynnumst áhrifaríkum aðferðum til að eiga frumkvæði í samskiptum og dýpka sambönd
- Lærum mikilvægi þess að taka ábyrgð og stjórn á eigin lífi
- Aukum sjálfstraust
Tímasetning
Námskeiðið eru tveir dagar: 1. og 8. október milli 19:30-21:30.
Innifalið
Gullna reglubókin, tímamótaáætlun (fyrir markmiðasetningu) og aðgangur að þjálfara.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.