Síðastliðinn laugardag tók Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, við veglegum styrk sem veittur var Ljósinu fyrir hönd vinningshafa á minningargolfmóti Vini vors og Dóra. Mótið, sem fram fór á golfvellinum Úthlíð í Biskupstungum, var til minningar um Halldór Snorra Gunnarsson en það var Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu sem gaf verðlaunaféð sem hljóðaði upp á 200.000 krónur.
Við sendum okkar allra bestu þakkir til allra þeirra sem komu að mótinu fyrir stuðninginn.
![](https://ljosid.is/wp-content/uploads/2020/06/Ljósið_Erna_Garðar_Sameyki_Styrkur-300x225.jpg)
Garðar Hilmarsson afhendir Ernu Magnúsdóttur styrkinn
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.