Kæru vinir,
Samkvæmt ráðleggingum frá Landlækni bendum við á að þeim þjónustuþegum og gestum Ljóssins sem dvalið hafa á landssvæðum þar sem Kórónaveiran hefur greinst, að bíða með heimsókn í Ljósið þar til 14 dögum eftir heimkomu.
Í Ljósinu höfum við aukið þrif í húsi og komið fyrir handspritti á fleiri stöðum í húsinu.
Við fylgjumst grant með tilkynningum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknis um stöðu mála og gerum allt hvað við getum til að tryggja að gestum Ljóssins stafi sem minnst hætta af veirunni.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.