Lionsklúbburinn Fjörgyn afhenti Ljósinu peningagjöf að upphæð 500.000 kr. Styrkurinn er framlag til kaupa á InBody 970S greiningartæki sem nýtist í líkamlegri endurhæfingu Ljóssins.
Við erum afar þakklát fyrir hlýhuginn og þennan mikilvæga stuðning sem gerir okkur kleift að efla þjónustuna okkar enn frekar. Hjartans þakkir til Lionsklúbbsins Fjörgyn fyrir þetta fallega framlag.

Á myndinni frá vinstri eru: Inga Rán Gunnarsdóttir, Mark Bruun Kristensen, Guðmundur Jóhannsson, Erna Magnúsdóttir, Jakob Gunnarsson, Stefán Diego og Erla Ólafsdóttir.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






