Snyrtinámskeið í Ljósinu – umhyggja fyrir húð, huga og sjálfsmynd

Í Ljósinu er starfrækt lítil snyrtistofa þar sem boðið er upp á meðferðir og námskeið sérstaklega hönnuð fyrir fólk í krabbameinsmeðferð. Þar fá þátttakendur tækifæri til að staldra við, næra húðina og öðlast smá ró og sjálfstraust á erfiðu tímabili.

Krabbameinsmeðferðir geta haft margvísleg áhrif á húð og útlit. Lyf geta valdið þurrki, ertingu og roða í húð, auk breytinga á hárvexti og útliti – eins og hármissi, missi augnhára og augabrúna. Slíkar breytingar geta haft áhrif á líðan fólks og sjálfsmynd. Í Ljósinu er unnið markvisst að því að mæta þessum þörfum og veita stuðning sem nærir bæði líkama og huga.

Húðumhirða og förðun sem hluti af bataferli

Í boði eru einstaklingsmeðferðir hjá snyrtifræðingi og hópnámskeið þar sem þátttakendur læra gagnlegar aðferðir í húðumhirðu og einfaldri förðun. Það getur verið stórt skref að læra að teikna upp augabrúnir eða bera á sig rakakrem – en áhrifin eru djúpstæð. Þetta er stund þar sem þátttakendur líða betur með sjálfa sig, fá hvatningu hver frá annarri og upplifa að betri dagar séu framundan.

Snyrtifræðingur Ljóssins er Erla Jóhannsdóttir og meðferðir fara fram á mánudögum. Tímapantanir fara fram í síma 561-3770 og tímarnir eru eingöngu ætlaðir krabbameinsgreindum, óháð kyni.

Náttúruleg og mild húð- og förðunarvara

Allar meðferðir eru framkvæmdar með hágæða húðvörum frá Blue Lagoon, sem veittar eru Ljósinu að kostnaðarlausu í gegnum gjafmilt samstarf. Blue Lagoon vörurnar eru þróaðar með náttúruleg efni úr jarðsjónum og innihalda m.a. kísil, þörunga og steinefni sem styðja við heilbrigði húðar, viðhalda rakajafnvægi og draga úr ertingu.

Einnig eru notaðar förðunarvörur frá vörulínunni Kind & Free, sem Ljósið fær gefins frá Halldóri Jónssyni heildsölu. Þessar vörur eru sérstaklega hannaðar með viðkvæma húð í huga og byggja á „clean beauty“ hugmyndafræði – formúlur án ilmefna, án steinolíu og án óþarfa aukaefna. Þær eru mildar, henta viðkvæmri húð og byggðar upp að mestu leyti með náttúrulegum innihaldsefnum. Þar sem náttúruleg efni nægja ekki til, er notast við örugg gerviefni sem standast kröfur um öryggi og næmni.

Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til Bláa Lónsins og Halldórs Jónssonar heildsölu fyrir stuðninginn – sem gerir okkur kleift að veita þessa þjónustu þátttakendum Ljóssins að kostnaðarlausu.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.