Ljósablaðið 2021 er komið út!

Árlegt tímarit Ljóssins er nú komið út í glæsilegri stafrænni útgáfu.

Eins og alltaf eru efnistökin fjölbreytt og spanna allt frá faglegum umfjöllunum starfsfólks yfir í áhrifaríkar frásagnir þjónustuþega.

Blaðið kemur út í stafrænni útgáfu sem gefur okkur tækifæri til að færa ykkur persónulegri frásagnir í formi hlaðvarpa, gæða umfjöllunina meira lífi með auknu myndefni og gera hinni einstöku grasrót Ljóssins hærra undir höfði með myndböndum.

Við vonum að þið njótið þessarar nýjungar með okkur.

Smelltu hér til að lesa blaðið

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.