Golfvöllurinn á Kiðjabergi býður karlmönnum í Ljósinu á golfmót

Fimmtudaginn 16. september klukkan 12:00 stendur golfvöllurinn á Kiðjabergi fyrir skemmtilegu golfmóti fyrir karlmenn í Ljósinu.

Mótið er opið öllum, sama hvaða færni þeir búa yfir í íþróttinni, en spilað verður tveggja eða fjögurra manna Texas fyrirkomulag sem hentar öllum reynslustigum.

Mótið er ókeypis og þeir sem ekki eiga kylfur geta fengið lánað hjá golfklúbbnum að kostnaðarlausu.

Áður en haldið verður út á völlinn býður golfklúbburinn upp á rjúkandi heita súpu og brauð.

Mæting er í golfskálann kl 12:00 í súpuna og ræst verður út kl 13:00

Skráning fer fram hér

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.