Bergmál býður ljósberum í orlofsviku í Bergheimum 16. – 23. september

Bergmál líknarfélag býður ljósberum að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir eða bara hlusta á fuglana á orlofsviku á Sólheimum (Bergheimahúsi) í Grímsnesi í september. Boðið verður upp á kvöldvökur á hverju kvöldi.

Mæting er á fimmtudegi um klukkan 14:00 og brottför á fimmtudegi klukkan 12:00.

Bergheimar er í eigu Bergmáls líknarfélags og á hverju sumri bjóða þau fólkinu okkar upp á ókeypis orlofsvikur. Árið 2019 fór stór hópur frá Ljósinu og það er aftur í boði í ár.

Um er að ræða vikuna 16. – 23. september næstkomandi en skráning er hafin í móttöku í síma 561-3770. Opið er fyrir skráningar til 10. júní næstkomandi.

Gist er í tveggja manna herbergjum með klósetti, sturtu og sjónvarpi.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.