Skokkhópur Ljóssins 2021

Vinsæli skokkhópur Ljóssins æfir alla miðvikudaga klukkan 15:00. Hópurinn hittist fyrir framan Ljósið og hleypur af stað í Laugardalinn í hverri viku fram að Reykjavíkurmaraþoni.

Í skokkhópnum hittast hlaupa- og skokkgarpar sem ætla sér að safna áheitum fyrir Ljósið í ágúst og munu þjálfarar Ljóssins hjálpa þátttakendum að byggja upp þol og þrek, hlægja og skemmta sér. – Hér getið þið skráð ykkur á áheitasíðuna.

Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest og hlaupa með ykkur inn í sumarið.

Skráning í síma 561-3770 eða í móttöku Ljóssins.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.