Golfmót Ljóssins 2020 gekk vel

Í síðustu viku stóð Golfklúbbur Kiðjabergs fyrir skemmtilegu golfmóti fyrir karlmenn í Ljósinu. Alls tóku 14 karlmenn þátt og var stemningin góð og allir skemmtu sér vel. Klúbburinn bauð öllum í golf ásamt því að bjóða upp á heita súpu og brauð áður en haldið var út á völlinn í golfbílum.

Veitt voru verðlaun fyrir fyrsta sæti og nándarverðlaun á fjórum brautum en að auki fengu allir sem tóku þátt smá vinning. Við þökkum frábærum samstarfsaðilum fyrir vinningana á mótinu: Askja, Brim, Ölgerðin, Heilsa, Takk hreinlæti, Altis, Von mathús, Hreyfing, Omnom og Ison.

Okkar allra bestu þakkir til Birkis Más Birgissonar og Golfkúbbs Kiðjabergs fyrir frábært framtak og gestrisni.

Við erum strax farin að hlakka til mótsins á næsta ári.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.