Star Trek aðdáendur söfnuðu 100.000 kr til styrktar Ljósinu

Star Trek aðdáendur leigðu Bíó Paradís til að horfa á nýja Star Trek Picard þætti og söfnuðu 100.000 kr til styrktar Ljósinu!

Það var góð mæting á Star Trek sýninguna í Bíó Paradís

Samáhorf nokkurra vina vatt óvart upp á sig þegar þau ætluðu að horfa saman á Star Trek Picard, nýja þætti sem hljóta mikið lof gagnrýnenda.

Þau ákváðu að bjóða vinum og vinum vina. Á endanum varð hópurinn svo stór að þau þurftu að leigja bíósal til að halda einkasamkvæmi þar og horfa á þættina, en það kostaði sitt. Allir ákváðu að leggja í púkk og ef einhver umfram peningur kæmi inn þá myndi hann renna óskiptur til Ljóssins. Á endanum mættu 85 manns sem allir greiddu sinn hlut og sumir rúmlega það þegar þeir fréttu að umfram peningur færi í gott málefni.

Öllum að óvæntu bauðst svo einn gestanna til að láta fyrirtæki sitt greiða fyrir salinn svo að allur peningurinn sem kom inn myndi renna til Ljóssins, en það voru nákvæmlega 100.000 krónur sem komu þetta kvöld.

Fyrirtækið sem tók að sér að greiða fyrir bíósalinn heitir Tölvuaðstoð og sérhæfir sig í að rýna og greina reikninga frá öðrum tölvu- og fjarskiptatækjum með það að markmiði að lækka kostnað og einfalda umfangið.

Haukur Guðmundsson, sjúkraþjálfari í Ljósinu og Star Trek aðdáandi, var einn af þeim sem stóð fyrir sýningunni. Hér ásamt Sonequa Martin-Green, Star Trek leikkonu.

Ákveðið hefur verið að nota upphæðina í kaup á hljóðkerfi í æfingarsal Ljóssins sem verið er að standsetja þessa dagana í nýju húsnæði sem flutt var á lóð Ljóssins í desember.

Við sendum okkar bestu þakkir til Tölvuaðstoðar og allra þeirra sem lögðu leið sína í Bíó Paradís á föstudaginn!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.