„Gunnusjóður“ – Styrktarsjóður Guðrúnar Ögmundsdóttur stofnaður fyrir Ljósbera

F.V. Sigþrúður Ármann, Kristín Jónsdóttir, Erna Magnúsdóttir, Gísli Víkingsson, Ingibjörg Gísladóttir og Ragnheiður Agnarsdóttir | Mynd: Ljósið

Það var glatt á hjalla á Langholtsveginum í gær, mánudaginn 20. janúar, þegar aðstandendur Guðrúnar Ögmundsdóttur færðu Ljósinu tæplega 700 þúsund króna styrk í hennar nafni. Við það tilefni var Gunnusjóður formlega stofnaður í Ljósinu en sjóðnum er ætlað að styðja við þá sem minna hafa á milli handanna og til að auðvelda þeim að nýta sér þjónustuliði sem eru í verðskrá.

Kristín Jónsdóttir, vinkona Guðrúnar og flokkssystir í Kvennalistanum, sagði við afhendinguna að eftir lát Gunnu vildu margir minnast þessarar merkilegu konu sem naut svo mikillar virðingar í samfélaginu. Kvennalistakonur stofnuðu því bankareikning sem vinir og vandamenn lögðu inn á. „Í anda Gunnu, sem ætíð hafði jöfnuð og réttlæti að leiðarljósi, mun Ljósið nota sjóðinn til til að bjóða þeim sem ekki eru aflögufærir að nýta sér þá þjónustu sem Ljósið býður þeim að kostnaðarlausu.“ sagði Kristín við tilefnið.

Það var létt yfir mannskapnum | Mynd: Ljósið

En afhverju Ljósið?

Að sögn Gísla Víkingssonar, eiginmanns Guðrúnar, var það hennar ósk að ef fólk vildi minnast hennar þá væri Ljósið einn af þeim stöðum sem hún vildi að yrði fyrir valinu.

Sigþrúður Ármann frá Exedra, sem er vettvangur umræðna fjölbreytts hóps kvenna, var viðstödd afhendinguna fyrir hönd félagsskapsins og sagði við tilefnið að „Þegar við í Exedra fréttum af þessari söfnun ákváðum við að taka höndum saman og leggja í sjóðinn. Guðrún var virk í Exedra og hafði þar sterka rödd. Hún var ótrúleg kona og við gleðjumst yfir því að fá að taka þátt í að stofna þennan sjóð“.

Að sjálfsögðu var boðið upp á köku og kaffi að athöfn lokinni, líkt og tíðkast í Ljósinu. | Mynd: Ljósið

Við sendum okkar dýpstu þakkir til allra þeirra sem hafa lagt í sjóðinn og tökum nú við þessari fallegu hugsjón og leyfum þannig nafninu hennar Gunnu óma um Ljósið og styðja við þá Ljósbera sem á þurfa að halda, líkt og henni var einni lagið.

Reikningsnúmer Gunnusjóðs: 0137-05-065826 kt. 590406-0740

Guðrún Ögmundsdóttir | Mynd: Mannlíf

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.