Fréttir

27
jún
2023

Renata minnir konur á sterkan kjarna, jákvætt hugarfar og von í verkum sínum

Renata Agnes Edwardsdóttir er myndlistakona og listmeðferðarfræðingur. Hún hefur undanfarið sótt endurhæfingu í Ljósið og gefur nú miðstöðinni þrjú verk úr sinni smiðju til styrktarsölu. Í verkum sínum varpar hún ljósi á konu eftir brjóstnám í baráttu við áfallið, líkamsbreytingar og tilfinningasveiflur. Verkið minnir konur á sterkan kjarna, jákvætt hugarfar og von sem býr innra með þeim í baráttu við

Lesa meira

27
jún
2023

Götusópun við Langholtsveg

Kæru vinir, Nú er verið að gera fínt hjá okkur á Langholtsveginum og stendur til að sópa götuna í dag. Við biðjum ykkur vinsamlegast að leggja ekki bílum við götuna í dag. Það eru stæði  við Langholtsskóla og KFUM. Með fyrirfram þökk, Starfsfólk Ljóssins

15
jún
2023

Golfmót til styrktar Ljósinu

Föstudaginn 23.júní næstkomandi heldur Guðlaugur Magnússon sólstöðumót Lauga til styrktar Ljóssins. Mótið verður haldið á Grafarholtsvelli,þar sem ræst verður út kl. 19:20. Spilaðar verða 18 holur og hámarksforgjöf er 30 fyrir öll kyn. Golfklúbbur Reykjavíkur styrkir mótið með afnot af vellinu. Mótið er eingöngu styrktarmót og rennur allur ágóði óskiptur til Ljóssins. Mótsgjald er 10.000 krónur. Verðlaunaafhending verður kl.23:30 við

Lesa meira

12
jún
2023

Myndasyrpa – Fjölskylduganga Ljóssins 2023

Það má með sanni segja að gleðin hafi verið við völd í árlegri fjölskyldugöngu Ljóssins í síðustu viku þegar flottur hópur þjónustuþega, aðstandenda og velgjörðarfólks Ljóssins gekk saman í kringum Hvaleyrarvatn. Andlitsmálning barnanna mætti á svæðið og skreytti unga sem aldna, þjálfarateymið stýrði upphitun og starfsfólk Ljóssins passaði upp á að allir færu á sínum hraða, og að göngu lokinni

Lesa meira

1
jún
2023

Árleg fölskylduganga Ljóssins fer fram fimmtudaginn 8. júní.

Þann 8. júní næstkomandi höldum við okkar árlegu fjölskyldugöngu. Við förum á nýjar slóðir í ár, en nú er gengið í kringum Hvaleyrarvatn. Við hittumst við vestara bílastæði klukkan 11:00. Gangan hefst með upphitun og í kjölfarið göngum við af stað, hvert á sínum hraða. Hringurinn í kringum vatnið er um 2,2 kílómetrar og stígurinn tiltölulega greiðfær – þéttur malarstígur

Lesa meira

25
maí
2023

Fyrrum meðlimir Pólýfónkórsins færa Ljósinu styrk

Í morgun fengum við góða gesti þegar fulltrúar Pólýfónfélagsins og fyrrum kórsystkini í Pólýfónkórnum færðu Ljósinu styrk. Upphæðin safnaðist í kjölfar söfnunar sem Guðmundur Guðbrandsson efndi til meðal fyrrum kórmeðlima í tilefni 100 afmælis Ingólfs Guðbrandssonar. Ingólfur Guðbrandsson var, eins og margir vita, kórstjóri og driffjöður Pólýfónkórsins í áratugi. Hann hefði orðið 100 ára nú í mars og hafa því

Lesa meira

23
maí
2023

Klukkaðar kveðjur til þátttakenda

Í síðustu viku settum við í loftið nýja herferð með heitið Klukk, þú ert’ann. Líkt og margir vita er kjarninn í herferðinni myndaband og ljósmyndir sem sýna á tregafullan hátt þá átakanlegu staðreynd að einn af hverjum þremur mun greinast með krabbamein á lífsleiðinni. Verkefnið er unnið í samstarfi við aragrúa góðra aðila sem leggja málefninu lið með margvíslegum hætti.

Lesa meira

18
maí
2023

Hátíðleg frumsýning herferðar

Við erum í skýjunum eftir hvort í senn notalega og hátíðlega stund þegar ný herferð var frumsýnd í húsnæði Ljóssins í gær. Frú Eliza Reid verndari verkefnisins ýtti herferðinni úr vör og tónlistarkonan Lay Low spilaði ljúfa tóna. Við þökkum öllum sem nutu þessarar stundar með okkur fyrir komuna.  

18
maí
2023

Klukk, þú ert’ann – Þátttaka fyrirtækja

Kæru vinir, Nú höfum við hrint af stað sérstöku átaksverkefni sem miðar að því að safna pening fyrir nýjum húsakynnum fyrir Ljósið. Verkefnið ber yfirskriftina Klukk, þú ert’ann og er kjarninn í verkefninu fallegt myndband sem minnir okkur á hversu tilviljanakennt það er hverjir munu greinast með krabbamein á lífsleiðinni. Samhliða birtingu myndbandsins höfum við hrundið af stað svokölluðum klukk-keðjum

Lesa meira

17
maí
2023

Klukk, þú ert’ann!

Kæri vinur, Í dag hrintum við í Ljósinu úr vör herferð með yfirskriftinni Klukk, þú ert´ann. Þar föngum við athygli þjóðarinnar með auglýsingu sem minnir okkur á þá sláandi staðreynd að einn af hverjum þremur Íslendingum greinist með krabbamein á lífsleiðinni. Markmið herferðarinnar er að safna fyrir nýju húsnæði, en húsakynni Ljóssins eru orðin alltof lítil. Eins og margir vita þá er Ljósið eina endurhæfingarmiðstöðin sem sérhæfir

Lesa meira