Heil og sæl kæru vinir, Við í Ljósinu fögnum hverri árstíð og förum spennt inn í haustið sem sannarlega hefur sinn sjarma. Haustdagskrá Ljóssins býður uppá mikið úrval af dagskrárliðum, þjónustuþegar okkar ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér að neðan stiklum við á stóru á því sem í boði er. Við hvetjum ykkur eindregið til að kynna
Það er aldeilis sem tíminn flýgur! Nú fer september mánuður að líða í garð og við höfum verið í óða önn að skipuleggja haustið. Það verður svo sannarlega nóg um að vera hér í Ljósinu og meðal annars eru að fara af stað þrjú aðskilin aðstandendanámskeið: Fyrir börn 6-13 ára hefst 18. september Fyrir ungmenni 14-17 ára hefst 1. október
Margt var um manninn í maraþongleði Ljóssins á Hafnartorgi að Reykjavíkurmaraþoni loknu síðastliðinn laugardag. Þar litu við hlauparar, aðstandendur og aðrir góðvinir Ljóssins og fögnuðu góðu gengi í hlaupinu á meðan þau gæddu sér á heimabökuðu bananabrauði úr Ljósinu og drykkjum frá Ölgerðinni. Flestir gestir voru sammála að það væri ómetanlegt að fá að hittast smá og loka maraþonupplifuninni með
Lokað verður í Ljósinu mánudaginn 2. september og þriðjudaginn 3. september vegna starfsdaga starfsfólks. Við opnum aftur miðvikudaginn 4. september samkvæmt stundaskrá. Við minnum á að hægt er að leita upplýsinga um starfsemin hér á heimasíðunni og jafnframt er hægt að panta minningarkort hér á síðunni. Hlökkum til að koma fílefld til starfa á ný og göngum glöð inn í
Kæru vinir, Fimmtudaginn 29. ágúst milli 9:00-11:00 verður rafmagnslaust á Langholtsvegi. Vegna þessa mun símkerfi Ljóssins liggja niðri á þessum tíma. Athugið að rafmagnsleysið hefur ekki áhrif á þjónustu Ljóssins.
Maraþondagurinn hófst snemma hjá okkur að vanda á laugardag þegar starfsfólk Ljóssins stillti upp fyrir árlegu klappstöðina JL húsið. Gríðarlegur fjöldi kom við og hjálpaði okkur við að klappa og fastagestir nefndu að þau hefðu aldrei séð jafn marga mæta til klapps. Það endurspeglast í því að við höfum fengið miklar þakkir frá hlaupagörpum, bæði okkar og annarra félaga, fyrir
Nú er maraþongleðin í hávegi í Ljósinu og einungis nokkrir klukkutímar í að ræst verður í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2024. Undanfarna tvo daga hefur starfsfólk Ljóssins staðið vaktina á skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons, Fit&run, í Laugardalshöll og afhent yfir 250 boli til allra okkar dásamlegu einstaklinga sem hlaupa fyrir Ljósið á morgun – Takk fyrir komuna öll! Það er okkar mat (algjörlega hlutlaust)
Ljósið býður í eftirpartý fyrir hlaupagarpa sem og aðstandendur að Reykjavíkurmaraþoni loknu! Þar verður gleðin og þakklætið við völd, léttar veitingar og myndabás. Lukkudýr Ljóssins mætir og kætir unga sem aldna. Litla Ljósabúðin verður á staðnum. Við vonumst til að sjá sem flest á Hafnartorgi (Hafnarstræti 19) klukkan 11:00 – 14:00. Hér finnið þið viðburðinn á Facebook en á myndinni
Fuglar og landslag eru megin áherslur í vatnslitaverkum Ölmu Sigrúnar sem seld verða á markaði Sjóminjasafnsins á menningarnótt. Alma Sigrún sótti endurhæfingu í Ljósið fyrir nokkrum árum og fékk þar að kynnast hinum margvíslegu formum myndlistar á námskeiði sem hún sótti samhliða annarri endurhæfingu. Þar fönguðu vatnslitirnir huga hennar og síðan þá hefur hún sótt námskeið í listforminu. Þau verk
Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons bjóðum við til sölu hlaupagleraugu og derhúfur í takmörkuðu upplagi. Við hvetjum þau sem vilja kaupa sér varning til að smella sér í vefverslun Ljóssins eða kíkja við hjá okkur á Langholtsveginum. Ef eitthvað verður eftir að gleraugum og derhúfum munum við taka það með okkur á skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons sem fram fer á fimmtudag og föstudag í