Á morgun fimmtudaginn 19. nóvember, verður nýtt húsnæði Ljóssins að Gylfaflöt 5 formlega tekið í notkun með opnunarhátíð. Hátíðin stendur frá klukkan 16:00 til 18:00 og er opin ljósberum, fjölskyldum þeirra, ljósavinum og öðrum velunnurum sem vilja fagna með okkur.
Við höfum fært okkur um set en hjartað slær á sama stað. Hér er áfram heimili þar sem hver og einn er velkominn nákvæmlega eins og hann er og þar sem fólk fær endurhæfingu og stuðning á eigin forsendum.
Gestir fá tækifæri til að skoða nýja húsið, þiggja léttar veitingar og njóta ljúfra tóna.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga notalega stund saman.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






