Bergur og félagar úr slökkviliðinu færðu Ljósinu glæsilegan styrk

Í dag fengum við í Ljósinu dásamlega heimsókn þegar Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, og félagar hans af slökkvistöðinni á Tunguhálsi komu til okkar. Þeir létu sig ekki muna um að mæta á svæðið á slökkviliðsbíl og sjúkrabíl í fullum skrúða, sem vakti að vonum mikla lukku! Tilefnið var afhending á glæsilegum styrk, hátt í 600 þúsund krónum, sem safnaðist um síðustu helgi.

Síðastliðinn laugardag, þann 7. nóvember, stóðu Bergur og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fyrir sannkölluðum þrekdegi til styrktar Ljósinu á slökkvistöðinni í Mosfellsbæ. Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á allt: þol, styrk, einbeitingu og seiglu. Þrekprófið er tekið í sérstakri þrekbraut og flest sem fara hana einu sinni eru jafnan afar sátt með það. Bergur gerði sér hins vegar lítið fyrir og endurtók brautina stanslaust í heil 12 klukkutíma!

Það var mikil gleði sem fylgdi þessari flottu heimsókn í dag. Á hverjum degi styður Ljósið einstaklinga aftur til virkni og þátttöku á þeirra eigin forsendum — endurgjaldslaust. Það er einmitt ómetanlegur stuðningur eins og þessi sem heldur dyrunum opnum fyrir alla og gerir okkur kleift að halda úti þverfaglegri endurhæfingu fyrir þá sem á þurfa að halda.

Við sendum okkar dýpstu þakkir til Bergs, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og allra Ljósavina sem lögðu söfnuninni lið. Takk fyrir að vera með okkur – samfélagið í Ljósinu er það sem gerir starfið mögulegt.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.