Þann 24.október héldu þeir Beggi og Pacas skemmtilegt bleikt partý á Kanarí og var tilefnið Bleikur október og voru þeir að safna fyrir Ljósið.
Mikið af íslendingum dvelst yfir vetrartímann í hitanum á Kanarí og var mikil gleði og stemming í sólinni og söfnuðust yfir 400.000kr.
Fyrir tilviljun var hún Erna okkar framkvæmdarstýra Ljóssins úti á Kanarí á sama tíma þegar hún frétti af þessu bleika partýi og var hún var ekki lengi að skella sér í bleika kjólinn og kíkja á þá félaga.
Takk elsku Beggi og Pacas og þið öll fyrir ykkar framlag.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.




