Okkur í Ljósinu langar að vekja athygli á gagnlegum og notalegum viðburði sem fer fram hjá Eirbergi og Stuðlabergi á mánudaginn kemur, 12. október.
Viðburðurinn er sérstaklega hugsaður fyrir konur sem hafa farið í brjóstaaðgerð og vilja kynna sér þau úrræði sem í boði eru – á sínum eigin forsendum. Gestur kvöldsins er Lene Heiberg, sérfræðingur frá Amoena. Hún mun veita persónulega ráðgjöf og kynna nýjungar; meðal annars gervibrjóst, fleyga, fatnað og stuðningsvörur sem nýtast vel við meðhöndlun á bjúg á skurðsvæði.
Við í Ljósinu vitum hversu miklu máli það skiptir fyrir vellíðan að finna rétta stuðninginn eftir aðgerð. Þetta kvöld er frábært tækifæri til að fá faglega ráðgjöf, eiga notalega stund saman og skoða úrvalið.
Dagskrá mánudaginn 12. október:
- Hvar: Eirberg, Stórhöfða 25.
- Kl. 17:00 – 18:00: Fræðsla með Lene Heiberg á 3. hæð.
- Kl. 18:00 – 19:00: Kvöldopnun í verslun. Boðið verður upp á léttar veitingar og 20-40% afslátt af völdum vörum.
Við hvetjum þær sem hafa áhuga til að kíkja við.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






