Krabbamein snertir ekki aðeins þann sem greinist, heldur alla fjölskylduna — og oft er sagt að krabbamein sé fjölskyldusjúkdómur. Það getur reynt á að standa við hlið ástvinar í gegnum greiningu og meðferð, og ekki síður mikilvægt að aðstandendur hugi að eigin líðan á sama tíma, enda erfitt að vera stuðningur fyrir aðra ef maður gleymir að standa með sjálfum sér.
Í Ljósinu hefst á næstunni nýtt námskeið fyrir aðstandendur fullorðinna. Þar gefst rými til að deila reynslu með öðrum sem þekkja þessar aðstæður, setja orð á tilfinningar og æfa sig í að setja mörk og sýna sjálfum sér mildi í bland við fræðslu og samtal, á þeim forsendum sem hver og einn treystir sér til.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:
- Að vera aðstandandi í endurhæfingarferlinu
- Hlutverk og venjur í samskiptum
- Sjálfsrækt sem aðstandandi
Næsta námskeið:
- Hefst 8. október
- Fimmtudagar kl. 16:15-18:15, í 5 skipti
- Umsjón: Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi, og Ingibjörg Ferdinands, markþjálfi og jógakennari
- Verð: 5.000 kr.
Fyrir þá sem búa fjær eða eiga hægara með að taka þátt heiman frá sér verður einnig boðið upp á námskeið í streymi, sem hefst í nóvember.
Skráning og nánari upplýsingar fara fram í síma 561-3770 og á vefnum https://ljosid.is/adstandendur/adstandendur-fullordnir/
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






