Golfmót til minningar um Hans A. Hjartarson safnaði 570.000 krónum fyrir Ljósið!
Í byrjun september var árlegt golfmót haldið til minningar um Hans A. Hjartarson, sem lést í júlí 2020. Hans var mikill íþróttaáhugamaður og hafði sérstaklega gaman af golfi. Fjölskylda hans og vinir ákváðu því að halda árlegt golfmót honum til heiðurs.
Í ár var mótið haldið í sjöunda sinn á Nesvelli og tóku rúmlega 100 fjölskyldumeðlimir, vinir og kunningjar þátt. Fjölskylda Hans segir að dagurinn hafi verið afar skemmtilegur og að það sé einstaklega dýrmætt að finna fyrir öllum þeim stuðningi sem fylgir mótinu.

Í ár ákváðu þau einnig að bæta við blöðrusölu og láta allan ágóðann renna til Ljóssins. Söfnunin skilaði 570.000 krónum! Ákvörðunin um að styrkja Ljósið var tekin þar sem Hans nýtti sér þjónustuna í Ljósinu í veikindum sínum. Málefnið er fjölskyldunni því mikilvægt og þeim fannst þetta falleg leið til að gefa til baka, segja þau.
Við hjá Ljósinu erum afar þakklát fyrir stuðninginn og hlýhuginn. Það er fallegt að sjá hvernig minningin um Hans lifir áfram í gegnum þessa fallegu hefð, samveru og stuðning.

Á myndinni frá vinstri eru Eva Pálsdóttir, Rakel Ósk Hreinsdóttir, Helena Ósk Hansdóttir, Erna Magnúsdóttir, Hjörtur Hansson og Haraldur Jens Guðmundsson.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






