Óendanlegt þakklæti eftir metsöfnun í Reykjavíkurmaraþoninu

Við í Ljósinu erum enn að jafna okkur á gleðinni eftir helgina. Samfélagið okkar sýndi svo sannarlega sinn hlýjasta hug í Reykjavíkurmaraþoninu í ár þar sem aldrei áður hefur safnast jafn mikil upphæð til stuðnings starfinu samtals 37.958.599 kr.

Með ykkar aðstoð getum við haldið áfram að bjóða upp á gjaldfrjálsa og þverfaglega endurhæfingu á forsendum hvers og eins.

„Ég er ótrúlega hrærð og full af djúpu þakklæti. Þetta er metsöfnun, aldrei áður hefur safnast jafn mikil upphæð fyrir Ljósið. Fyrir okkur er þetta fyrst og fremst falleg staðfesting á því hversu miklu máli starfsemin skiptir Ljósbera okkar og aðstandendur. Þessi stuðningur kemur á nákvæmlega réttum tímapunkti þar sem við stöndum nú í stórum og dýrum framkvæmdum við að standsetja nýja húsnæðið okkar að Gylfaflöt 5 til að geta tekið enn betur á móti fólkinu okkar. Samfélagið er það sem gerir starfið mögulegt og fyrir það erum við óendanlega þakklát. Takk öll þið sem hlupuð og þið sem eruð búin að heita á hlauparana okkar. Auk allra hinna sem komu og klöppuðu,“ segir Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins.

Sérstakar þakkir Við viljum þakka hverjum og einum einasta hlaupara og öllum þeim sem lögðu málefninu lið.

Við viljum jafnframt senda sérstakar þakkir til þeirra einstaklinga og hópa sem söfnuðu hæstu upphæðunum fyrir Ljósið í ár og má hér sjá topp fimm:

 

Einstaklingar:

  1. Kári Björn Baldursson – 838.567 kr
  2. Sindri Már Kaldal Sigurjónsson – 670.000 kr
  3. Guðmundur Breiðfjörð – 615.000 kr
  4. Margrét Þórdís Hallgrímsdóttir – 6007.000 kr
  5. Una Ólöf Gylfadóttir – 606.000 kr

Hópar og meðlimir:

  1. Karfarnir – 1.771.000 kr
  2. Team Albert – 1.517.000 kr   (1.486.000 kr
  3. Hlauparar Avians – 1.325.901 kr
  4. Ljós í minningu Elsu – 1.201.000 kr
  5. Fyrir mömmu – 1.191.695 kr

 

Takk fyrir að ganga(og hlaupa) þennan veg með okkur !

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.