Reykjavíkurmaraþon (MYNDIR)

Kæru vinir,

Við erum í skýjunum eftir alveg frábæra helgi, bæði Fit&Run-hátíðina og maraþondaginn sjálfan!

Það var afar dýrmætt að fá að hitta ykkur öll sem völduð að hlaupa fyrir Ljósið. Þvílíkur kærleikur, stuðningur og gleði sem hefur einkennt síðustu daga! Við erum hjartanlega þakklát fyrir hvert eitt ykkar og þann ómetanlega stuðning sem þið sýnið starfsemi Ljóssins.

Maraþondagurinn hófst snemma hjá okkur og starfsfólk Ljóssins stillti upp fyrir klappstöð Ljóssins við JL-húsið. Það var yndislegt að sjá hversu margir komu og tóku þátt í að hvetja hlauparana okkar áfram. Stemningin var sannarlega ólýsanleg.

Við viljum senda öllum þeim sem komu, klöppuðu, góluðu og gáfu fimmur kærar þakkir fyrir komuna. Þið gerðuð maraþondaginn enn eftirminnilegri.

Takk fyrir að hlaupa fyrir Ljósið og styðja við bakið á okkur. Þið eruð öll frábær!

Hér fyrir neðan má finna myndir frá maraþondeginum og sjá brot af þessari dásamlegu stemningu.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.