Í ágúst fyllast götur borgarinnar af fólki sem hleypur til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu. En það eru til fleiri leiðir til að leggja málefnum lið en að reima á sig hlaupaskóna. Hönnuðurinn og Ljósberinn Tanja Levý ákvað að nýta sköpunarkraftinn til að safna fyrir Ljósið, þar sem hún vinnur nú að endurhæfingu sinni. Á Menningarnótt mun hún sýna og selja hönnun sína og í framhaldinu munu vörurnar fást í Litlu Ljósabúðinni.
Tanja er fjölhæfur hönnuður sem hefur unnið mikið við leikmynda- og búningahönnun fyrir leikhús og kvikmyndir, stíliseringu og eigin listsköpun. Hún er konan á bak við hið skemmtilega og litríka verkefni Brauðtertan lifir, þar sem þessi ástsæli íslenski veisluréttur prýðir allt frá sundbolum og viskastykkjum yfir í veggplaköt.
Við settumst niður með Tönju og spurðum hana út í hugmyndina að fjáröfluninni, hönnunina og reynslu hennar af Ljósinu.
Hvernig kviknaði þessi hugmynd að fjáröfluninni?
„Mig langaði, eins og svo marga aðra, að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og safna fyrir Ljósið sem hefur stutt mig svo vel í minni endurhæfingu. En raunveruleikinn er sá að ég hef einfaldlega ekki þolið í það akkúrat núna. Ég ákvað því að hætta að hugsa um það sem ég get ekki gert, og fara frekar aðra leið og nýta það sem ég hef – sköpunarkraftinn. Það er hægt að leggja góðum málefnum lið á svo marga vegu og þetta er mín leið til að gera hlutina á mínum eigin forsendum.“

Segðu okkur aðeins frá „Brauðtertan lifir“ – hvaðan kemur þessi skemmtilega hugmynd og vara?
„Ég hef alltaf haft gaman af því að leika mér með sjónræna framsetningu, hvort sem það er í leikhúsi, kvikmyndum eða minni eigin hönnun. Brauðtertan er meira en matur. Hún tengist veislum, fjölskyldum, samveru og minningum og er hluti af íslenskri hversdags- og heimilismenningu. Skreytingar brauðtertunnar er hluti af alþýðlegri hönnun þar sem form, litir og hráefni eru sett saman af sköpunargleði og persónulegum smekk. Mér fannst tilvalið að færa þessa gleði yfir á hversdagshluti eins og sundboli, handklæði og viskastykki. Það þarf nefnilega stundum bara smá liti og húmor inn í hversdaginn.“

Þú ert sjálf Ljósberi. Hvernig nýtir þú þér þjónustuna og hvernig hefur endurhæfingin reynst þér?
„Ljósið er staður þar sem tekið er á móti manni með hlýjum faðmi. Hér ræð ég ferðinni og fæ rými til að byggja mig upp á mínum hraða. Hvort sem það er að nýta sér faglega leiðsögn í endurhæfingunni, mæta á námskeið, í mánudagsklúbbinn með ungu konunum eða bara setjast niður með kaffibolla og vera í samfélagi við aðra sem skilja, þá gefur Ljósið manni svo mikið. Það að geta núna gefið aðeins til baka er mér mjög mikilvægt.“

Hvar verður hægt að nálgast brauðtertuvörurnar?
Á Menningarnótt mun Tanja vera með sýningu í Menningarráðuneytinu og sölu á vörum sínum á vefsíðu sinni Brauðtertan lifir þar sem hluti af sölunni rennur beint til Ljóssins.
Valin hönnun eftir Tönju verður einnig til sölu í Litlu Ljósabúðinni á Langholtsvegi þar sem hluti ágóðans mun sömuleiðis renna til starfseminnar.
Við þökkum Tönju kærlega fyrir frábært framtak. Hægt er að skoða hönnunina hennar nánar á braudtertanlifir.com og tanjalevy.com.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






