Fit&Run – hlaupabolir afhentir

Það styttist óðum í Reykjavíkurmaraþonið og undirbúningurinn eflaust á fullu hjá mörgum ykkar. Við erum ótrúlega þakklát fyrir að þið hafið valið að hlaupa fyrir Ljósið , hvert og eitt ykkar skiptir okkur gríðarlega miklu máli.

Nú er komið að því að græja sig fyrir hlaupadaginn sjálfan og fimmtudaginn 20.ágúst og föstudaginn 21. ágúst frá kl 14:00-20:00 verður Fit & Run sýningin haldin í Laugardalshöll og verðum við í Ljósinu með bás á staðnum (bás nr 23).

Þangað getið þið komið og sótt hlaupabol frá Ljósinu til að vera í á hlaupadeginum en þið sækið einnig hlaupanúmerin ykkar í Laugardalshöllinni.

Kíkið endilega við hjá okkur á meðan þið eruð í Höllinni, við tökum vel á móti ykkur og það væri virkilega gaman að heyra hvernig undirbúningurinn gengur.

 

Takk fyrir ykkur öll frábæru hlauparar 🫶

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.