Falleg gjöf sem mun prýða veggi Ljóssins

Við fengum þá einstöku gjöf að fá að velja nokkur falleg listaverk, eftir myndlistarkonuna Hrafnhildi Gísladóttur, sem munu skreyta nýja húsnæði Ljóssins.

Hrafnhildur lést fyrr á árinu en það var vilji hennar og fjölskyldunnar að góðgerðarfélög, þar á meðal Ljósið, fengju að njóta listaverka hennar.

Hjartans þakkir til fjölskyldu Hrafnhildar fyrir þessa fallegu hugsun og gjöf. Það er okkur sannur heiður að fá að prýða veggi Ljóssins með verkum Hrafnhildar. Við vitum að þau munu gleðja gesti, þjónustuþega og starfsfólk og vera falleg áminning um listina og hlýjuna sem Hrafnhildur skilur eftir sig.

Á myndinni er Bjarni Gíslason, bróðir Hrafnhildar, sem tók afar vel á móti okkur þegar við sóttum verkin í gær.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.